Quick Summary
Ert þú að ljúka námi eða nýlega komin/n inn á vinnumarkað með brennandi áhuga á sölu og markaðsmálum? Líkar þér vel við að vera í samskiptum við fólk,
Ert þú að ljúka námi eða nýlega komin/n inn á vinnumarkað með brennandi áhuga á sölu og markaðsmálum? Líkar þér vel við að vera í samskiptum við fólk, ert hugmyndaríkur/hugmyndarík og vilt vinna þar sem þitt framlag skiptir máli? Þá viljum við heyra í þér.
Meniga leitar að jákvæðum og drífandi Viðskiptastjóra sem tekur virkan þátt í samskiptum við samstarfsfyrirtæki í tengslum við fríðindakerfi og Markaðsvakt Meniga, þjónustar notendur Meniga.is og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum hér á landi. Tilvalið fyrir einstakling sem vill vaxa í starfi og fá traust til að bera ábyrgð á eigin verkefnum.
Hvað felst í starfinu?
- Sala og ráðgjöf til íslenskra fyrirtækja — allt frá litlum sérverslunum til stærstu fyrirtækja landsins
- Uppbygging og umsjón viðskiptatengsla
- Þátttaka í þróun markaðsgreininga og túlkun á gögnum
- Aðstoð við hugmyndavinnu og undirbúning kynningarefnis
- Samskipti og þjónusta við notendur Meniga samfélagsins
Hverju erum við að leita að?
- Háskólanám sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu- og/eða markaðsstarfi er kostur
- Þekking á íslenskum einstaklingsmarkaði (B2C) er kostur
- Áhugi á markaðsgreiningum og gögnum
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Hvað bjóðum við upp á?
- Líflegan og skemmtilegan vinnustað
- Alþjóðlegt og tæknidrifið starfsumhverfi
- Sveigjanlegan vinnutíma
- Frábært mötuneyti
- Íþróttastyrk
- Farsímastyrk
- Áskrift að síma og interneti
- Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet í íslensku atvinnulífi
Um er að ræða fullt stöðugildi á skrifstofu Meniga í Turninum í Kópavogi. Meniga er gagnadrifið fjártæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldslausnum og persónumiðuðum, stafrænum vörum fyrir banka. Meniga er einnig með skrifstofur í London og Varsjá og hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn. Viðskiptastjóri starfar í fámennu en samhentu og öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á jákvæðni og lausnamiðað hugarfar.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Spurningar og umsóknir sendist á sonja.juliusdottir@meniga.com
Location & Eligibility
Listing Details
- Posted
- May 28, 2026
- First seen
- May 29, 2026
- Last seen
- May 30, 2026
Posting Health
- Days active
- 0
- Repost count
- 0
- Trust Level
- 52%
- Scored at
- May 29, 2026
Signal breakdown
Please let meniga know you found this job on Jobera.
3 other jobs at meniga
View all →Explore open roles at meniga.
Stay ahead of the market
Get the latest job openings, salary trends, and hiring insights delivered to your inbox every week.
No spam. Unsubscribe at any time.